Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 10. janúar 2021 08:30
Aksentije Milisic
Lampard: Mín arfleið hjá Chelsea kemur ekki í veg fyrir brottrekstur
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, goðsögn hjá Chelsea og stjóri liðsins, segir að þrátt fyrir að hann sé goðsögn hjá félaginu að þá muni hann ekki fá lengri tíma en aðrir þjálfara hafa fengið hjá félaginu, ef það gengur áfram illa.

Chelsea hefur verið í lægð að undanförnu og spjótin eru farin að beinast að Lampard. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum.

„Ég get ekki stjórnað öllu og ég get ekki treyst á það sem hefur gerst í fortíðinni," sagði Lampard.

„Fyrir mánuði síðan litu hlutirnir mjög vel út hjá okkur. Núna skyndilega gera þeir það ekki, svona er fótboltinn. Ég verð að vera jákvæður, ég get ekki stjórnað því sem gerist utan fótboltans."

„Ég skil um hvað fótbolti snýst. Ég skil væntingarnar sem gerðar eru hér. Ég get bara verið heiðarlegur með það hvernig ég sé hlutina."

Chelsea mætir Morecamb í FA bikarnum í dag.
Athugasemdir
banner
banner