Heimild: ÍBV
ÍBV hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í efstu deild kvenna. Félagið hefur náð samkomulagi við Ameera Hussen að spila með liðinu.
Ameera er 22 ára leikmaður sem kláraði tímabilið í Washington háskóla í nóvember.
Ameera er 22 ára leikmaður sem kláraði tímabilið í Washington háskóla í nóvember.
Hún hefur leikið í fimm ár með háskólanum og var í vor valin í besta lið Pacific-region á lokahófi deildarinnar.
Ameera leikur sem miðjumaður og bindur félagið miklar vonir við leikmanninn fyrir tímabilið.
Athugasemdir