mán 10. janúar 2022 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: ÍBV 
Lettarnir orðnir þrír hjá ÍBV (Staðfest)
Mynd: SV Meppen
ÍBV tilkynnti fyrr í dag að félagið væri komið með bandarískan miðjumann fyrir átökin í efstu deild kvenna í sumar.

Núna seinni partinn tilkynnti svo félagið um annan leikmann, lettneskan landsliðsbakvörð.

Sú heitir Sandra Voitane og er 22 ára gömul. Hún hefur spilað í Lettlandi, Kýpur, Þýskalandi og Austurríki á sínum ferli, síðast með Wacker Innsbruck í Austurríki.

Í Þýskalandi lék hún í efstu deild árið 2020 og varð fyrsti Lettinn til að spila þar. Hún kemur til með að hitta tvo samlanda sína hjá félaginu, þær Olgu Sevcovu og Viktoriju Zaicikovu, sem áttu báðar gott tímabil með ÍBV á síðasta ári.

Sandra getur leikið margar stöður á vellinum, hjá lettneska landsliðinu hefur hún að mestu leyti leikið sem bakvörður í síðustu verkefnum. Hún á 39 leiki fyrir landsliðið og hefur skorað í þeim 12 mörk. Á Wikipedia er hún skráð sem framherji.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner