Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 10. janúar 2022 19:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Phil Jones er meiddur - Ronaldo og Sancho líka
Phil Jones.
Phil Jones.
Mynd: EPA
Ralf Rangnick, stjóri Manchester United, greindi frá því núna áðan að Cristiano Ronaldo, Jadon Sancho og Phil Jones séu allir á meiðslalistanum.

Þessir þrír leikmenn eru ekki í hóp gegn Aston Villa í enska bikarnum í kvöld.

Jones hefur verið mikið meiddur á ferli sínum hjá Man Utd og sú saga ætlar engan endi að taka. Hann kom inn gegn Úlfunum á dögunum og stóð sig vel en nær ekki að byggja ofan á þá frammistöðu í kvöld. Rangnick segir að Jones sé að glíma við smávægileg kálfameiðsli.

Sá þýski sagði að meiðslin hjá Ronaldo og Sancho væru ekki alvarleg.

Fyrirliðinn Harry Maguire er einnig meiddur, en markvörðurinn Dean Henderson er það ekki. Hann er sagður vilja fara í nýtt félag á láni þar sem hann er ekki aðalmarkvörður Man Utd og fær ekki mikið að spila.
Athugasemdir
banner
banner
banner