Fotbolti.net
10.02.13 - 21:00
Magnús Már Einarsson

Christopher Tsonis og Ruben Resendes í Tindastól (Staðfest)

Ruben Resendes.

Ruben Resendes.

Canon

Mynd: Tindastóll

Tindastóll hefur samið við tvo erlenda leikmenn sem munu leika með liðinu í sumar.

Annar þeirra er bandaríski framherjinn Christopher Tsonis sem kemur til Tindastóls frá Southern New Hampshire þar sem hann skoraði 16 mörk á yfirstandandi tímabili.

Tsonis kom til Tindastóls á reynslu á dögunum fyrir tilstuðlan Soccerviza en hann lék tvo leiki með liðinu í Fótbolta.net mótinu og skoraði í þeim tvö mörk.
Tindastóll hefur einnig gengið frá samning við Ruben Resendes um að spila með liðinu næsta sumar.

Ruben, er líkt og Tsonis, fæddur árið 1991 en hann kemur frá sama liði. Ruben ber portúgalskt ríkisfang en hann er væntanlegur til Sauðárkróks í Apríl.

Heimild: Heimasíða Tindastóls

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.