10.02.14 - 14:47
Magnús Már Einarsson
ÍBV fær framherja frá Trinidad & Tobago (Staðfest)

Jonathan Glenn.

Mynd: ÍBV

Jonathan Glenn.

Mynd: ÍBV
ÍBV hefur gengið frá eins árs samningi við framherjann Jonathan Glenn frá Trinidad & Tobago.
Jonathan er 26 ára gamall en hann á að baki landsleiki bæði með U17 og U-20 ára landsliði Trinidad &Tobago.
Í gær sömdu Eyjamenn einnig við Dominic Adams frá Trinidad & Tobago.
Jonathan lék með St. Leo háskólanum í Florida og er 5. markahæsti leikmaður í sögu skólans þar sem hann skoraði 41 mark í 57 leikjum og lagði upp 16 mörk.
Eftir útskrift hefur Jonathan leikið með Vermont Voltage í PDL deildinni og Jacksonville United í NPSL deildinni í Bandaríkjunum.
ÍBV bauð Jonathan samning eftir að hann æfði og lék með félaginu gegn Haukum í Fótbolti.net mótinu og í æfingaleik gegn Val fyrir skömmu síðan.
,,ÍBV býður Jonathan velkominn til félagsins og væntir mikils af honum á komandi keppnistímabili,\" segir í tilkynningu frá ÍBV.