Fotbolti.net
10.02.14 - 16:32
Hafliði Breiðfjörð

Telma Ólafsdóttir í Älta IF (Staðfest)

Telma í leik með Val.

Telma í leik með Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Kvennaboltinn
Miðvörðurinn Telma Ólafsdóttir er gengin í raðir Älta IF í Svíþjóð frá Val en sænska félagið staðfesti þetta á vef sínum rétt í þessu.
,,Telma mun auka samkeppni í hópnum og varnarlínunni,\" sagði Marcelo Fernandez þjálfari sænska liðsins á vef félagsins í dag.

Hún hefur fengið úthlutað treyjunúmerinu 8 hjá sínu nýja félagi.

Næsti leikur Älta IF er í sænska bikarnum 16. mars næstkomandi en liðið leikur í næst efstu deild þar í landi.

Telma sem verður 21 árs gömul á árinu spilaði 18 leiki með Val síaðsta sumar og á í heildina að baki 47 leiki með félaginu síðan meistaraflokksferilinn hófst 2010.

Hún hefur leikið 10 leiki fyrir U19 ára landslið Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.