Fotbolti.net
10.02.17 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Hernanes frá Juventus til Kína (Staðfest)

Hernanes frá Juventus til Kína (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski miðjumaðurinn Hernanes hefur yfirgefið Juventus og gengið í raðir Hebei China Fortuna í Kína.

Talið er að Hebei China Fortune borgi 8,5 milljónir punda fyrir Hernanes.

Hinn 31 árs gamli Hernanes var í landsliðshópi Brasilíu á HM 2014 en hann hefur á ferli sínum einnig leikið með Lazio og Inter.
Hjá Hebei China Fortune verður hann meðal annars liðsfélagi Gervinho, Stephane Mbia og Ezequiel Lavezzi en Manuel Pellegrini, fyrrum stjóri Manchester City, er þjálfari liðsins.

Nóg er til af pening hjá Hebei China Fortune en Lavezzi er til að mynda sagður vera einn launahæsti leikmaður heims með samningi sínum hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.