Hinn tvítugi Djordje Panic er farinn til Þýskalands frá Aftureldingu. Hann hefur samið við félag sem heitir Bayern Alzenau og leikur í D-deild í Þýskalandi.
Djordje, sem er framherji, kom við sögu í 13 leikjum með Aftureldingu í Inkasso-deildinni síðasta sumar og skoraði eitt mark. Hann kom til Aftureldingar frá KR fyrir síðustu leiktíð eftir að hafa verið í lykilhlutverki í 2. flokki KR-inga.
Djordje hefur þrátt fyrir ungan aldur komið víða við á ferlinum. Hann spilaði í yngri flokkum Fjölnis áður en hann gekk til liðs við stórlið Rauðu Stjörnunnar í Serbíu þegar hann var 17 ára. Hann fór svo í KR, þaðan í Aftureldingu og núna er framundan ævintýri í Þýskalandi.
„Eftir tímabilið í fyrra með Aftureldingu hringdi umboðsmaðurinn minn í mig og sagði að þetta félag vildi fá mig á reynslu," segir Djordje við Fótbolta.net um hvernig Bayern Alzenau kom til sögunnar.
„Það var pása hjá okkur í Aftureldingu ákvað ég að kíkja út til þeirra og æfði með þeim í viku. Þjálfarinn var mjög ánægður og vildi fá mig strax. Mér leist mjög vel á þetta og ég vildi prófa að spila hérna í Þýskalandi."
Djordje, sem á leiki að baki fyrir U15 og U16 landslið Íslands, verður í Þýskalandi að minnsta kosti þangað til í maí. Hann segir að um spennandi deild sé að ræða.
„Tímabilið endar hérna 16. maí og ég verð þá aftur samningslaus. Ég ætla sjá hvernig þetta gengur hérna og ákveða síðan eftir tímabilið hvað ég geri."
„Þetta er spennandi deild. Í deildinni eru til dæmis U23 Hoffenheim, U23 Mainz og U23 Freiburg."
Í sömu deild og Guðmundur Steinn
Bayern Alzenau átti að spila æfingaleik gegn B-deildarliði Darmstadt í dag, en þeim leik var frestað út af storminum Sabine. Guðlaugur Victor Pálsson er á mála hjá Darmstadt.
Djordje verður ekki eini Íslendingurinn í D-deildinni í Þýskalandi því Guðmundur Steinn Hafsteinsson samdi nýverið við Rot-Weiss Koblenz. Guðmundur Steinn lék með Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni síðustu tvö tímabil og ræddi við nokkur félög í efstu deild á Íslandi áður en hann samdi við erlendis.
Djordje og Guðmundur eru meira að segja í sömu deild í Þýskalandi; suðvesturhluta D-deildarinnar. Bayern Alzenau er sem stendur í 13. sæti, en Rot-Weiss Koblenz er á botni deildarinnar með aðeins fjögur stig eftir 20 leiki.
Djordje og félagar hefja leik í deildinni eftir vetrarfrí næsta laugardag. Guðmundur Steinn og félagar byrja þann 23. febrúar, en þá mæta þeir einmitt Bayern Alzenau í Íslendingaslag. Fróðlegt verður að fylgjast með þeim leik.
Athugasemdir