Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 10. febrúar 2020 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Leó Ernir til ÍA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur fengið til sín Leó Erni Reynisson frá Fylki en þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Skagamanna í dag.

Leó Ernir er fæddur árið 2001 og á að baki tvo landsleiki fyrir U16 ára landslið Íslands.

Hann spilaði tvo leiki með meistaraflokki Fylkis í Reykjavíkurmótinu en er nú farinn í ÍA.

Leó hefur ekki langt að sækja hæfileika sína í knattspyrnu en Reynir Leósson er faðir hans. Reynir lék með ÍA, Fram, Val og Víkingi R. á ferli sínum og á 256 leiki í deild- og bikar.
Athugasemdir
banner
banner