Fotbolti.net
10.02.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Giovinco aftur í Serie A eftir langa fjarveru (Staðfest)

Sebastian Giovinco.

Sebastian Giovinco.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Sebastian Giovinco er mættur aftur í ítalska boltann. Hann er búinn að skrifa undir samning við Sampdoria.
Hinn 35 ára gamli Giovinco var leikmaður Juventus áður en hann gekk í raðir Toronto FC í Kanada þar sem hann reyndist einn allra besti leikmaður MLS deildarinnar næstu fjögur árin.

Upp á síðkastið hefur hann leikið með Al-Hilal í Sádí-Arabíu, þar sem hann hefur eflaust fengið ágætlega borgað.

Giovinco á 23 landsleiki að baki fyrir Ítalíu en hann hefur ekki leikið í Serie A síðan hann var hjá Juventus fyrir átta árum.

Hann kveðst vera mjög ánægður að vera kominn aftur í Serie A. Giovinco skrifaði undir samning sem rennur út eftir tímabilið.

Sampdoria er í 16. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.