Fotbolti.net
10.02.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jökull lánaður til Reynis (Staðfest) - Var öflugur boltastrákur

Úr leik hjá Reyni síðasta sumar.

Úr leik hjá Reyni síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Reynir Sandgerði hefur fengið miðvörðinn Jökul Mána Jakobsson á láni frá Keflavík.
„Jökull Máni sem er ungur og uppalinn Keflvíkingur og leikur í stöðu miðvarðar hefur verið lánaður til nágranna okkar í Sandgerði. Jökull hefur komið sterkur inn í meistaraflokkinn undanfarna mánuði og telur þjálfarateymið mikilvægt að hann fái sína meistaraflokksreynslu á þessu tímabili," segir í tilkynningu Keflvíkinga.

Jökull, sem er fæddur árið 2003, mun fá reynslu með Reyni í 2. deildinni í sumar.

Jökull komst í fréttirnar árið 2015 þegar hann stóð sig með mikill prýði sem boltastrákur hjá Keflavík.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.