10.03.14 - 11:02
Magnús Már Einarsson
Halldór Orri til Falkenbergs (Staðfest)

Halldór Orri Björnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Orri Björnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Orri Björnsson er á förum frá Stjörnunni en hann hefur skrifað undir eins árs samning við sænska úrvalsdeildarliðið Falkenbergs.
Falkenbergs FF er að spila í sænsku úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins en félagið sigraði fyrstu deildina á síðustu leiktíð.
Hinn 27 ára gamli Halldór Orri hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá Stjörnunni undanfarin ár en hann hefur skorað 65 mörk í 180 leikjum með liðinu.

„Þetta var mjög erfið ákvörðun þar sem ég er búinn að vera í Stjörnunni alla mína ævi og spennandi sumar framundan hjá Stjörnunni en ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir á mínum ferli,\" segir Halldór Orri á heimasíðu Stjörnunnar.
,,Ég vil þakka þjálfarateyminu, leikmönnum, liðsstjórum, stjórn knattspyrnudeildarinnar, sjálfboðaliðum og síðast en ekki síst Silfurskeiðinni fyrir ánægjulegan tíma síðustu ár og ég hlakka til að fylgjast með liðinu í sumar.\"
Rúnar Páll Sigmundsson segir að Stjörnumenn muni sækja liðsstyrk eftir þessi tíðindi.
„Við óskum Halldóri Orra góðs gengis í Svíþjóð. Hann hefur reynst okkur frábærlega undanfarin ár. Við vinnum nú að því að fá til okkar leikmann til að fylla í skarðið fyrir hann,\" sagði Rúnar Páll.