Fotbolti.net
10.03.16 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrrverandi sóknarmaður Bolton kaupir félagið (Staðfest)

Dean Holdsworth situr nú í stjórn Bolton.

Dean Holdsworth situr nú í stjórn Bolton.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýir eigendur Bolton eru búnir að kaupa 94,5 prósent hlut í knattspyrnufélaginu.

Annar kaupendanna er Dean Holdsworth sem gerði 39 mörk í 158 deildarleikjum fyrir Bolton á árunum 1997-2003.
Holdsworth fer fyrir hópi fjárfesta sem eru búnir að kaupa félagið ásamt Ken Anderson, eiganda fjárfestingafyrirtækisins Inner Circle Club.

„Það er með mikilli gleði sem Bolton Wanderers kynnir að samningsviðræðum á milli Sports Shield, Inner Circle og Eddie Davies um sölu félagsins er opinberlega lokið,\" stendur í yfirlýsingu frá félaginu.

„Dean Holdsworth og Ken Anderson fá báðir sæti í stjórn félagsins og er Eddie Davies, sem tók sæti í stjórninni árið 1999 áður en hann eignaðist meirihluta í félaginu árið 2003, búinn að bætast í hóp heiðursforseta.\"

Bolton hefur átt skelfilegt tímabil og er á botni Championship deildarinnar, með aðeins 4 sigra í 36 leikjum. Það eru 10 leikir eftir af tímabilinu og þarf Bolton að vinna upp 10 stig til að falla ekki niður í C-deildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.