Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 10. mars 2020 12:30
Brynjar Ingi Erluson
Shaw ánægður með innkomu Fernandes
Bruno Fernandes
Bruno Fernandes
Mynd: Getty Images
Enski bakvörðurinn Luke Shaw er afar ánægður með þá öflugu frammistöðu sem Bruno Fernandes hefur boðið upp á frá því hann gekk til liðs við Manchester United í janúar.

Portúgalski miðjumaðurinn hefur skorað þrjú mörk og lagt upp þrjú í öllum keppnum frá því hann kom og þá hefur United ekki tapað í síðustu tíu leikjum.

„Við vitum að stundum mun hann tapa boltanum en við þurfum þessar áhættusendingar frá honum til að opna varnirnar," sagði Shaw.

„Hann er hefur verið frábær til þessa og komið inn með stoðsendingar og mikilvæg mörk."

„Við þurfum að halda áfram að bæta okkur og hvetja hann til að gera það sama því hann á nóg inni,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner