„Tel að við sem lið getum fengið meira jákvætt en neikvætt út úr því að ég spili svona"

Kom í KR í sumarglugganum í fyrra og varð aðalmarkvörður liðsins síðasta vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur aftur á völlinn eftir meiðsli sem hann varð fyrir í apríl.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Duglegur að koma vel út úr vítateignum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er klárlega einn besti miðvörðurinn í deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Virkilega gaman að sjá hann blómstra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom í KR eftir að hafa varið mark HK.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Það hefur verið geggjað að fylgjast með liðinu spila eins og þeir hafa gert á tímabilinu og gera svona flotta hluti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Hann er auðvitað mjög hugaður og er einhvern veginn ekki að ofhugsa hlutina, algjörlega óttalaus og svo er hann bara mjög fínn á bolta'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom í KR í sumarglugganum í fyrra og varð aðalmarkvörður liðsins síðasta vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í aðdraganda Íslandsmótsins vakti hlutverk Arnars athygli því hann stóð mjög framarlega í marki KR og tók virkan þátt í spili liðsins. Þeir sem horfðu á leikinn gegn ÍA á sunnudag sögðu að Arnar hefði verið jafnvel enn framar í þeim leik en hann hafði áður verið. Hann fór m.a. inn á vallarhelming andstæðinganna og kom með fyrirgjöf.
Fótbolti.net ræddi við Arnar.
„Það er virkilega gaman að vera mættur aftur á völlinn, og sú tilfinning varð bara ennþá betri þar sem við náðum að vinna leikinn," segir Arnar.
„Mér fannst liðið spila virkilega góðan leik í gær og ná að svara þessum leik uppá Skaga fyrir viku síðan mjög vel, ég er líka þokkalega ánægður með mína frammistöðu í leiknum þó svo að það böggi mann alltaf að fá á sig mörk og það er alltaf eitthvað sem maður vill gera betur. En heilt yfir er ég bara þokkalega ánægður."
„Fyrir mér besti maður leiksins"
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, ræddi um Arnar eftir sigurinn gegn ÍA.
„Hann gefur okkur svo margt. Dóri hefur verið flottur í erfiðu hlutverki en ég held að það hafi allir séð í þessum leik hvað við erum búnir að sakna Arnars mikið. Bæði sem persóna inn á vellinum, hann er stór persónuleiki og gefur liðinu mikið öryggi. Hann er auðvitað mjög hugaður og er einhvern veginn ekki að ofhugsa hlutina, algjörlega óttalaus og svo er hann bara mjög fínn á bolta. Það er auðvitað það að markmaðurinn okkar geti komið með boltann og borið hann inn á vallarhelming andstæðinganna, auðvitað gefur það þér ákveðna vídd og setur andstæðingana í ákveðið vesen sem að þeir þurfa að leysa. Svo er hann bara flottur á milli stanganna, fyrir mér maður leiksins í dag," sagði Óskar við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Á mjög skrítnum stað á vellinum"
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, sagði að staðsetning Arnars hefði ekki komið á óvart.
„Arnar spilaði hálfan leik á móti okkur á uppi á Skaga, þannig að við áttum von á þessu. Ég man ekki eftir því að það komi neitt hættulegt upp úr því að hann væri vaðandi upp völlinn. Við vorum kannski heldur mikið að reyna skjóta frá miðju því hann er náttúrulega á mjög skrítnum stað á vellinum. Við hefðum átt að halda aðeins betur í boltann í fyrri hálfleiknum. En þessi hlaup hans upp völlinn skiptu okkur engu máli, við breyttum ekki pressunni út af því," sagði Lárus Orri við Fótbolta.net eftir leikinn.
Sem betur fer ekkert bakslag
Hvernig gekk endurkoman, gekk þetta eins og smurt eða voru einhverjar hindranir á leiðinni?
„Endurhæfingin gekk virkilega vel, sem betur fer varð ekkert bakslag í endurhæfingunni, en svo þarf maður alltaf að vinna upp fyrra form og það er allt að koma."
„Auðvitað er pínu súrsætt að þurfa að fylgjast með liðinu uppí stúku. Erfitt að fá ekki að taka þátt í þessu inná vellinum. En það hefur verið geggjað að fylgjast með liðinu spila eins og þeir hafa gert á tímabilinu og gera svona flotta hluti."
Finnst þetta koma náttúrulega
Arnar er spurður út í leikstíllinn; það að koma svona framarlega út á völlinn. Er aldrei neitt stress að eitthvað gæti farið illa og refsingin þung fyrir það?
„Nei, ekkert þannig, ég hef gaman að því að spila þennan fótbolta og svo er bara partur af því að spila svona að það sé reynt að skjóta yfir mann. Ég tel að við sem lið getum fengið meira jákvætt en neikvætt út úr því að ég spili svona."
Þarf maður að vera með mjög kaldan haus?
„Já, mögulega þarf maður að vera með kaldan haus, en fyrst og fremst finnst mér þetta bara virkilega skemmtilegt og þar af leiðandi finnst mér þetta bara koma náttúrulega."
„Það fara ekkert öðruvísi hugsanir í gegnum hausinn þegar ég þarf að „sweepa" en þegar ég þarf að fara í einn á einn; maður metur stöðuna, hvort maður eigi séns eða ekki og ef að maður metur hana þannig að maður eigi séns, þá fer maður og reynir að ná boltanum."
Þú fórst yfir miðju með boltann, er það eitthvað sem þú ert vanur?
„Get ekki sagt að ég sé vanur því að vera hlaupa með boltann að vallarhelmingi andstæðingana, það er vissulega nýtt fyrir mér en það er bara sama og með hitt: ég hef virkilega gaman af því."
Frammistaða Galdurs kemur ekkert á óvart
Arnar var spurður út í tvo liðsfélaga sína, fyrst Galdur Guðmundsson sem skoraði tvö mörk gegn ÍA á sunnudag. Hvernig er að sjá Galdur koma svona vel inn í liðið eftir að Amin var seldur?
„Það er virkilega gaman að sjá hann blómstra, ekki það að hann er búinn að sýna það síðan hann kom hvort sem það sé á æfingum eða leikjum hversu góður hann er, þannig þetta kemur mér persónulega ekkert á óvart."
Klárlega einn besti miðvörðurinn í deildinni
Arnar var einnig spurður út í Finn Tómas Pálmason. Finnur Tómas hefur fengið mikið lof í sumar, hvernig vinnið þið hlutina saman aftast?
„Finnur er búinn að vera virkilega góður í sumar og hefur sýnt það að hann er klárlega einn besti miðvörðurinn í deildinni og það gefur auga leið að það er mjög þægilegt að spila með honum. Hvort sem það er Finnur eða einhver annar í vörninni, þá tölum við oft saman á æfingum um það hvernig við viljum gera hlutina og reynum bara að vinna þetta saman."
Vinna alla leiki sem eftir eru
Fjórir leikir eru eftir af tímabilinu og næsti leikur er heimaleikur gegn Víkingi. Hvað vilt þú fá út úr lokakaflanum á mótinu?
„Ég vil bara að við klárum þetta mót sterkt, ætlum okkur að vinna alla þá leiki sem eftir eru og svo sjáum við hverju það skilar okkur," segir Arnar Freyr að lokum.

Mættur aftur á völlinn eftir meiðsli sem hann varð fyrir í apríl.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Duglegur að koma vel út úr vítateignum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er klárlega einn besti miðvörðurinn í deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Virkilega gaman að sjá hann blómstra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom í KR eftir að hafa varið mark HK.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Það hefur verið geggjað að fylgjast með liðinu spila eins og þeir hafa gert á tímabilinu og gera svona flotta hluti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Hann er auðvitað mjög hugaður og er einhvern veginn ekki að ofhugsa hlutina, algjörlega óttalaus og svo er hann bara mjög fínn á bolta'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skjáskot af því hvar Arnar var á vellinum framan af leik gegn ÍA.

Mynd: Sofascore
