þri 10. mars 2020 15:28
Elvar Geir Magnússon
Þór frestar Goðamótum vegna veirunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Afstaða Íþróttafélagsins Þórs er sú að við viljum þátt í því að axla þá samfélagslegu ábyrgð að hefta útbreiðslu Covid-19 veirunnar og þar með geyma allt mótahald á vegum knattspyrnudeildar félagsins þar til ástandið skánar," segir í frétt á heimasíðu Þórs.

Þór Akureyri hefur ákveðið að fresta Goðamótum Þórs í 6. flokki karla og 5. flokki kvenna vegna útbreiðslu kórónaveirunnar.

Af heimasíðu Þórs
Eftir stöðug fundarhöld innan Íþróttafélagsins Þórs er það ljóst að eindregin vilji félagsins er að fresta Goðamótunum til vorsins, eða þar til ástandið skánar vegna Covid-19 veirunnar. Nýjar dagsetningar á mótunum eru 15.-17. maí fyrir 6. flokk karla og 1.-3. maí fyrir 5. flokk kvenna.

Sú ákvörðun að halda mótahaldi til streitu var tekin út frá okkar bestu vitund miðað við tilmæli ÍSÍ og þeirra samtali við Landlæknisembættið á fundi sem haldinn var í gær. Þeir sem að mótinu standa eru ekki sérfræðingar á þessu sviði og ekkert fordæmi er fyrir þeirri stöðu sem er uppi. Ákvörðunin var því erfið, líkt og sú ákvörðun sem hefur verið tekin nú og er endanleg.

Vonum við að fólk úti í knattspyrnusamfélaginu sýni því skilning að við töldum okkur vera að halda mótið í góðri trú og biðjumst við velvirðingar á því ef ákvarðanir okkar ollu þeim félögum og þátttakendum sem mótið ætluðu að sækja, óþægindum.

Afstaða Íþróttafélagsins Þórs er sú að við viljum þátt í því að axla þá samfélagslegu ábyrgð að hefta útbreiðslu Covid-19 veirunnar og þar með geyma allt mótahald á vegum knattspyrnudeildar félagsins þar til ástandið skánar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner