10.03.22 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum landsliðskona spilað með Fylki - Tvær bætast við (Staðfest)

Rakel Logadóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fyrrum landsliðskonan Rakel Logadóttir hefur komið við sögu í fjórum leikjum hjá Fylki á þessu undirbúningstímabili.
Rakel tók við Fylki eftir síðustu leiktíð og þjálfar hún liðið ásamt Jóni Steindóri Þorsteinssyni.
Rakel, sem er á 41. aldursári, var gríðarlega öflugur leikmaður en hún á að baki hátt í 300 meistaraflokksleiki og 26 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Hún var ekki titluð sem spilandi þjálfari þegar hún tók við en hefur samt sem áður komið við sögu í fjórum leikjum í vetur. Þetta voru hennar fyrstu keppnisleikir í fimm ár.
Fylkir hefur annars bætt við sig tveimur leikmönnum á síðustu vikum.
Melkorka Ingibjörg Pálsdóttir kom frá Grindavík. Hún er fædd árið 2000 og hefur skorað 31 mark í 62 leikjum með Augnabliki og Grindavík.
Þá kom Klara Mist Karlsdóttir á láni frá Stjörnunni. Klara Mist leikur jafnt sem miðju- og varnarmaður. Hún endurnýjaði samning sinn við Stjörnuna áður en hún fékk félagaskipti yfir í Fylki.
Fylkir féll úr efstu deild síðasta sumar og leikur í næst efstu deild, Lengjudeildinni, í sumar.

Klara Mist

Mynd: Fylkir