10.03.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gaui Þórðar stækkar leikmannahóp sinn (Staðfest)

Gaui Þórðar, þjálfari Ólsara.

Mynd: Raggi Óla

Gaui Þórðar, þjálfari Ólsara.

Mynd: Raggi Óla
Guðjón Þórðarson hefur verið að bæta leikmönnum við hóp sinn hjá Víkingi Ólafsvík síðustu daga.
Alls hafa fimm leikmenn bæst við leikmannahópinn samkvæmt vefsíðu KSÍ.
Framherjinn Andri Þór Sólbergsson er kominn á láni frá Fram. Hann er mikill markaskorari og gerði hann átta mörk í ellefu leikjum með ÍH í 3. deild í fyrra. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Ólsara í 1-3 tapi gegn KH í Lengjubikarnum á dögunum.
Arnór Siggeirsson kom frá Kormáki/Hvöt þar sem hann lék síðast. Arnór er með mikið nef fyrir markaskorun en síðustu ár hefur hann leikið í 4. deild með Kormáki/Hvöt og Úlfunum. Hann á þá leiki að baki með Þrótti Vogum og KV.
Gunnar Bragi Jónasson og Mikael Hrafn Helgason koma báðir af Skaganum og Uros Mladenovic skiptir yfir frá Snæfelli.
Ólsarar féllu úr Lengjudeildinni í fyrra og leika í 2. deild í sumar. Þessir leikmenn eiga að hjálpa þeim í baráttunni þar.