10.03.22 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Marín snýr heim frá Ítalíu og fer í Grindavík (Staðfest)

Marín í leik með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marín í leik með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marín Rún Guðmunsdóttir er komin heim og mun spila í íslenska boltanum í sumar eftir dvöl erlendis.
Marín, sem er fædd árið 1997, yfirgaf Keflavík og fór til Hellas Verona á Ítalíu.
Samkvæmt vefsíðunni Soccerway þá lék Marín ekki leik með Hellas Verona í ítölsku úrvalsdeildinni.
Hún er núna búin að fá félagaskipti aftur til Íslands og er búin að semja við Grindavík. Marín hefur allan sinn feril á Íslandi spilað með Keflavík en ætlar í sumar að taka slaginn með nágrönnunum í Grindavík.
Marín hefur alls leikið 117 leiki í deild og bikar með Keflavík og skorað í þeim 27 mörk.
Grindavík hafnaði í sjötta sæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð.