Fotbolti.net
10.03.22 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Martin Rauschenberg aftur til Gefle (Staðfest)

Martin Rauschenberg aftur til Gefle (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski miðvörðurinn Martin Rauschenberg er genginn í raðir Gefle í Svíþjóð.

Martin hefur spilað á Íslandi undanfarin ár þrjú tímabil, með Stjörnunni 2019 og svo á láni hjá HK tímabilin 2020 og 2021.
Fyrst kom hann hingað til lands árið 2013 og árið 2014 varð hann Íslandsmeistari með Stjörnunni.

Martin samdi við Gefle í desember en er nú kominn með félagaskipti frá Íslandi. Hann er þrítugur miðvörður sem er í annað sinn genginn í raðir Gefle því hann fór einnig til sænska félagsins eftir tímabilið 2014 með Stjörnunni.

Gefle er í þriðju efstu deild í Svíþjóð, spilar í Ettan Nörra. Þar mun hann mæta Alexander Helga Sigurðarsyni sem spilar með Vasalunds.

Martin er uppalinn í Esbjerg í Danmörku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.