10.03.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sandgerðingar klófesta króatískan markvörð (Staðfest)

Reynir fær liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reynir fær liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir hefur klófest króatíska markvörðinn Ivan Jelic. Hann er kominn með leikheimild hjá Sandgerðingum.
Jelic er 24 ára gamall og kemur til Reynis frá NK Hrvace í Króatíu. Það er lið sem er í þriðju efstu deild þar í landi. Hann á að baki 41 leik í næst efstu deild Króatíu á sínum ferli.
Rúnar Gissurarson varði mark Reynis á síðustu leiktíð en hann er kominn yfir til Keflavíkur.
Reynir hefur verið að styrkja lið sitt undanfarna daga eins og sjá má með því að smella hérna.
Reynir hafnaði í sjöunda sæti 2. deildar á síðustu leiktíð. „Við ætlum að byggja á það sem við gerðum á síðasta tímabili. Þú vilt alltaf komast hærra, en markmiðið er að ná stöðugleika og reyna að taka skref fram á við ef við getum. Við sjáum hvað gerist, við þurfum að leggja mikið á okkur," sagði Luka Jagacic, þjálfari liðsins, í viðtali í síðasta mánuði eftir að Reynir hafnaði í öðru sæti í C-deild Fótbolta.net mótsins.