Þór/KA 4 - 2 FH
1-0 Erin Fleury ('5 )
2-0 Erin Fleury ('15 )
2-1 Eva Marín Sæþórsdóttir ('18)
3-1 Erin Fleury ('40 )
4-1 Amalía Árnadóttir ('51 )
4-2 Elín Björg N. Símonardóttir ('69 )
1-0 Erin Fleury ('5 )
2-0 Erin Fleury ('15 )
2-1 Eva Marín Sæþórsdóttir ('18)
3-1 Erin Fleury ('40 )
4-1 Amalía Árnadóttir ('51 )
4-2 Elín Björg N. Símonardóttir ('69 )
Þór/KA skellti sér upp í annað sætið í riðli sínum í Lengjubikar kvenna með sigri á FH í Boganum í kvöld.
Bæði þessi lið voru með sex stig fyrir leikinn og áttu möguleika á að fara upp fyrir Þrótt með sigri.
Þór/KA byrjaði leikinn af krafti og nýr leikmaður liðsins, Erin Fleury, var í miklu stuði. Hún skoraði fyrstu tvö mörk leiksins áður en Eva Marín Sæþórsdóttir minnkaði muninn fyrir FH.
Erin Fleury var búin að fullkomna þrennu sína fyrir hálfleik og í byrjun seinni hálfleiks skoraði Amalía Árnadóttir fjórða mark Þórs/KA.
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir klóraði í bakkann fyrir FH og lokatölur voru 4-2. Þór/KA er eins og áður segir komið upp fyrir Þrótt, sem á þó einn leik eftir. Þróttur getur tryggt sér sæti í undanúrslitunum með einu stigi gegn FHL í lokaleik riðilsins.
Stjarnan var nú þegar búið að tryggja sér sæti í undanúrslitunum.
Athugasemdir



