Galatasaray 1 - 0 Liverpool
1-0 Mario Lemina ('7 )
1-0 Mario Lemina ('7 )
Liverpool þurfti að sætta sig við tap gegn Galatasaray í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Það voru aðeins sjö mínútur liðnar af leiknum þegar Mario Lemina kom Galatasaray yfir með marki af harðfylgi eftir hornspyrnu.
Liverpool hafði byrjað leikinn vel en eftir þetta tók Galatasaray völdin og voru sterkari aðilinn. Liverpool gekk illa að halda í boltann og var staðan 1-0 í hálfleik.
Um miðbik seinni hálfleiks skoraði Victor Osimhen mark fyrir heimamenn sem var dæmt af vegna rangstöðu. Segja má að Liverpool hafi verið heppnir þar. Alper Yilmaz var dæmdur rangstæður en hann kom ekki við boltann og reyndi varla við hann, en það var nóg til að dæma markið af. Ibrahima Konate var heppnastur allra þar sem hann leit mjög kjánalega út í markinu.
Svo stuttu eftir það skoraði Liverpool mark sem var dæmt af. Konate fékk þá boltann í höndina áður en hann endaði í markinu. Virgil van Dijk var ekki sáttur þar sem hann taldi á sér brotið í aðdragandanum. Hann fékk þó ekkert fyrir sinn snúð.
Heilt yfir var leikurinn ekki nægilega góður hjá Liverpool og er þetta annað 1-0 tap þeirra gegn Galatasaray á tímabilinu - þeir töpuðu líka í deildarkeppninni. Andrúmsloftið var rafmagnað í Tyrklandi í kvöld en Liverpool hefur verk að vinna í seinni leiknum ef liðið ætlar sér í 8-liða úrslitin.
Athugasemdir



