Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 20:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mesta niðurlæging Tottenham til þessa?
Antonin Kinsky var tekinn út af eftir tvö skelfileg mistök.
Antonin Kinsky var tekinn út af eftir tvö skelfileg mistök.
Mynd: EPA
Martröð Tottenham ætlar engan endi að taka. Núna er liðið að láta flengja sig í Madríd.

Spurs spilar við Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöldd. Það var liðið korter af leiknum þegar hægt var að fullyrða að einvígið væri svo gott sem búið.

Atletico var þá nefnilega komið í 3-0.

Marcos Llorente gerði fyrsta markið eftir að Antonin Kinsky, sem fær tækifæri í marki Spurs, rann á rassgatið. Antoine Griezmann bætti við öðru marki eftir að Mickey van de Ven rann á rassinn og svo gerði Julian Alvarez þriðja markið nokkrum sekúndum síðar eftir önnur hræðileg mistök hjá Kinsky.

Öll þrjú mörkin eins og atriði í Klaufabárðunum en Kinsky var bara kippt af velli - svo slakur var hann.

Varnarmaðurinn Robin Le Normand er búinn að gera fjórða markið og einvígið er bara búið.

Tottenham er í fallhættu í ensku úrvalsdeildinni en þeir þurfa væntanlega ekki að spá mikið meira í Meistaradeildinni.


Athugasemdir
banner
banner