Fotbolti.net
10.03.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
LiveyÍtalski boltinn

Napoli ætlar að verðlauna McTominay með launahækkun

McTominay og Höjlund.

McTominay og Höjlund.

Canon

Mynd: EPA

Napoli vill, samkvæmt heimildum Il Mattino, framlengja samning Scott McTominay fram á sumarið 2030.

McTominay var keyptur til Napoli sumarið 2024 frá Manchester United og var verðmætasti leikmaður ítölsku deildarinnar á síðasta tímabili þegar Napoli varð meistari.
Samkvæmt upplýsingum ítalska blaðsins segir að McTominay sé ekki á meðal fimm launahæsta leikmanna félagsins - og að félagið vilji breyta þeirri staðreynd. McTominay hefur gert mjög góða hluti frá komu sinni.

McTominay er 29 ára skoskur miðjumaður sem skoraði 12 mörk á síðasta tímabili. Hann hefur skorað sex mörk á þessu tímabili og tvö þeirra hafa verið valin mörk mánaðarins.

Samkvæmt Capology er McTominay með lægri laun en Kevin De Bruyne, Rasmus Höjlund, Romelu Lukaku og Matteo Politano. Giovanni Di Lorenzo, McTominay, David Neres og Eljif Elmas eru sagðir í sama launaflokki með um 107 þúsund evrur í vikulaun. Capology áætlar grunnlaun leikmanna, ekki er um staðfestar tölur að ræða, en miðað við þær er De Bruyne með helmingi hærri grunnlaun en McTominay.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio8+1122
2Inter7+1219
3Roma8+1318
4Como8+717
5Milan7+715
6Frosinone7+413
7Torino8+213
8Cagliari8-313
9Napoli8+311
10Juventus7+111
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma8-104
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.