Þýska félagið Dortmund er sagt íhuga að fá Jadon Sancho aftur í sínar raðir í sumar þegar samningur hans við Manchester United rennur út.
United keypti Sancho af Dortmund sumarið 2021 en hann náði ekki að blómstra á Old Trafford.
Á síðasta tímabili var hann á láni hjá Chelsea og á þessu tímabili er hann á láni hjá Aston Villa. Fyrri hluta ársins 2024 lék hann á láni með Dortmund.

Dortmund er samkvæmt Sky í Þýskalandi sagt til í að fá enska kantmanninn ef hann er til í að taka á sig launalækkun. Það eru þó ekki allir hjá Dortmund vissir um að það væri góð ákvörðun að fá Sancho aftur.
Sancho verður 26 ára seinna í þessum mánuði. Hann er uppalinn hjá Watford og Manchester City. Dortmund fékk hann til sín 2017 og vakti hann mikla athygli fyrir góða frammistöðu í Þýskalandi. Manchester United keypti hann á um 73 milljónir punda og hefur hann skorað 12 mörk í 83 leikjum í öllum keppnum með United.
Á þessu tímabili hefur hann skorað eitt mark og lagt upp eitt í 28 leikjum með Aston Villa.
Athugasemdir