10.04.13 - 12:21
Elvar Geir Magnússon
Magnús Þórir í Keflavík (Staðfest) - Undirritað úti í sólinni

Mynd: Heimasíða Keflavíkur

Mynd: Heimasíða Keflavíkur
Magnús Þórir Matthíasson er kominn heim í Keflavík en hann skrifaði undir samning til tveggja ára í æfingaferð liðsins á Spáni. Skrifað var undir við sundlaugarbakkann.
Hann á að baki 52 leiki fyrir Keflavík í efstu deild (sjö mörk), sex bikarleiki (þrjú mörk) og einn leik í Evrópukeppni. Magnús breytti til á síðasta ári og lék með Fylki en hefur nú snúið aftur.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var Magnúsi tilkynnt hjá Fylki að honum væri frjálst að leita sér að öðru félagi þar sem hann gæti ekki gengið að sæti vísu hjá Árbæjarliðinu.
Magnús Þórir er 23 ára og getur bæði leikið sem kant- og sóknarmaður. Hann lék mjög vel með Keflavíkurliðinu áður en hann hélt í Árbæinn.