10.04.14 - 10:50
Magnús Már Einarsson
Ingiberg Ólafur í Fram (Staðfest)

Ingiberg í leik með Þrótti síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar hafa fengið varnarmanninn Ingiberg Ólaf Jónsson í sínar raðir frá Breiðabliki en félögin hafa náð samkomulagi um félagaskipti leikmannsins.
,,Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Inga Óla (eins og hann er ætíð kallaður) kærlega fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni,\" segir á heimasíðu Breiðabliks.
Ingi Óli er 19 ára og uppalinn Bliki en hann er ennþá gjaldgengur í 2. flokk.
Á síðasta tímabili var Ingi Óli í láni hjá Þrótti síðari hluta tímabils þar sem hann lék átta leiki í fyrstu deildinni.
Ingi er enn einn ungi leikmaðurinn sem Fram fær í sínar raðir fyrir komandi tímabil en fjórtán nýir leikmenn hafa komið til félagsins síðan Bjarni Guðjónsson var ráðinn þjálfari síðastliðið haust.