Fotbolti.net
10.04.17 - 17:50
Magnús Már Einarsson

Marko Blagojevic í Þrótt V. (Staðfest)

Marko í baráttunni í leik með Völsungi.

Marko í baráttunni í leik með Völsungi.

Canon

Mynd: Hafþór - 640.is

Þróttur Vogum hefur fengið serbneska varnarmanninn Marko Blagojevic til liðs við sig.

Þróttur er fimmta liðið sem Marko leikur með á Íslandi en í fyrra spilaði hann með Víði Garði í 2. deildinni.
Marko kom til Íslands 2008 til að leika með Víði Garði í 2. deildinni en það gerði hann í tvö ár.

Árið 2012 hjálpaði Marko síðan Völsungi að komast upp úr 2. deildinni. Árið eftir lék Marko bæði með Völsungi og Magna en sumarið 2014 var hann hjá KF. Í fyrra spilaði Marko síðan með Magna.

Þróttur Vogum ætlar sér stóra hluti í 3. deildinni í sumar en á dögunum fékk félagið annan öflugan miðvörð, Admir Kubat. Admir var valinn bestur hjá Víkingi Ólafsvík þegar liðið sigraði 1. deildina árið 2015.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.