Fotbolti.net
10.04.17 - 12:38
Magnús Már Einarsson

Tony Adams nýr þjálfari Sverris Inga (Staðfest)

Tony Adams.

Tony Adams.

Canon

Mynd: Getty Images

Tony Adams, fyrrum fyrirliði Arsenal, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Granada á Spáni. Samningur Adams gildir út tímabilið.

Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason er á mála hjá Granada en hann er varnarmaður líkt og Adams var á ferli sínum.
Granada tapaði 3-1 gegn Valencia í gær en Sverrir Ingi var tekinn af velli í fyrri hálfleik þar.

Þetta reyndist vera síðasti leikur Lucas Alcaraz þjálfara Granada en hann hefur nú verið rekinn og Adams hefur tekið við starfinu.

Adams stýrði Portsmouth tímabilið 2008/2009 og árin 2010 og 2011 þjálfaði hann Gabala í Aserbaídsjan.

Granada er í mjög vondum málum í La Liga en liðið er í næstneðsta sæti, sjö stigum frá öruggu sæti þegar sjö umferðir eru eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.