Fotbolti.net
10.05.16 - 10:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Renato Sanches til Bayern München (Staðfest)

Sanches er búinn að semja við Bayern

Sanches er búinn að semja við Bayern

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska stórveldið Bayern Munchen hefur staðfest kaup á hinum 18 ára gamla Renato Sanches.
Bayern tryggði sér þýska meistaratitilinn um síðustu helgi, en þetta eru fyrstu kaup sumarsins hjá félaginu.

Sanches kemur frá Benfica, en Manchester United var sagt hafa mikinn áhuga á leikmanninum.

Hann gerir fimm ára samning við Bayern, en hann gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í gær.

Kaupverið er sagt vera 35 milljónir evra fyrir þennan unga leikmann, en með tímanum gæti það hækkað upp í 45 milljónir evra.

Sanches lék sinn fyrsta landsleik fyrir Portúgalska landsliðið í mars gegn Búlgaríu, en Portúgal er með Íslandi í riðli á EM í sumar. Sanches gæti því verið einn af mótherjum Íslands á EM í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.