Fotbolti.net
10.05.16 - 10:52
Elvar Geir Magnússon

Hummels til Bayern München (Staðfest)

Enn ein stórstjarnan sem fer frá Dortmund til Bayern.

Enn ein stórstjarnan sem fer frá Dortmund til Bayern.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Bayern München hefur staðfest að varnarmaðurinn Mats Hummels sé genginn í raðir félagsins en hann hefur samþykkt samning til 2021. Hummels hefur verið lykilmaður hjá Borussia Dortmund og þýska landsliðinu.
Þessi tilkynning kemur aðeins nokkrum mínútum eftir að Bæjarar tilkynntu að hinn eftirsótti Renato Sanches væri kominn.

Hummels er 27 ára miðvörður sem var á sínum tíma í unglingastarfi Bæjara og lék einn leik með aðalliðinu áður en hann fór til Dortmund þar sem hann hefur skapað sér nafn sem einn besti varnarmaður Evrópu.

Bayern hefur haft mikla yfirburði í Þýskalandi undanfarin ár og tryggði sér titilinn þetta tímabilið um síðustu helgi.

Pep Guardiola hættir sem þjálfari Bæjara eftir tímabilið og mun þá Carlo Ancelotti taka við.

„Eftir mikla velgengni með Dortmund í átta og hálft ár var þetta alls ekki auðveld ákvörðun. Ég hef alltaf klæðst Dortmund treyjunni stoltur og það er heiður að vera hluti af svona mögnuðu liði. Áður en ég sný aftur í heimaborg mín á ég eitt stórt markmið eftir: Vinna bikarinn og gleðjast með stuðningsmönnum Dortmund,\" segir Hummels.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.