10.05.16 - 13:01
Elvar Geir Magnússon
Sigurður Gísli og Guðjón Gunnars í ÍR (Staðfest)

Siggi Bond í leik með FH í vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Bond í leik með FH í vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
2. deildarlið ÍR hefur bætt tveimur leikmönnum við leikmannahóp sinn.
Kantmaðurinn snöggi Sigurður Gísli Snorrason, kallaður Siggi Bond, kemur á láni frá Íslandsmeisturum FH.
Sigurður lék á lánssamningi hjá Fram í fyrra.

Miðjumaðurinn Guðjón Gunnarsson er kominn aftur til ÍR eftir veru hjá Þrótti og Gróttu, en hann lék með Breiðhyltingum til ársins 2012.
„Þeir eru komnir með leikheimild og verða í leikmannahóp kvöldsins fyrir bikarleikinn gegn KV,\" segir á Facebook-síðu ÍR.
ÍR-ingar töpuðu fyrir Gróttu í 1. umferð 2. deildar síðasta föstudag en þessum tveimur liðum er spáð upp úr deildinni.