10.06.13 - 16:30
Magnús Már Einarsson
David Weir tekur við Sheffield United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur ráðið Skotann reynda David Weir sem knattspyrnustjóra.
Hinn 43 ára gamli Weir var síðast í þjálfaraliði Everton en hann mun nú spreyta sig sem knattspyrnustjóri.

Sheffield United endaði í fimmta sæti í ensku C-deildinni á nýliðnu tímabili og datt síðan út í umspili.
Weir lagði skóna á hilluna í janúar 2012 en hann var rúmlega fertugur þegar hann lék sinn síðasta landsleik með Skotum.
Á ferli sínum spilaði Weir með Rangers, Everton, Hearts og Falkirk.

Heimild: BBC