Fotbolti.net
10.06.14 - 14:40
Alexander Freyr Tamimi
Ítalska deildin

Tatarusanu til Fiorentina (Staðfest)

Tatarusanu er mættur í Seríu A.

Tatarusanu er mættur í Seríu A.

Canon

Mynd: Getty Images

Fiorentina hefur fengið rúmenska landsliðsmarkvörðinn Ciprian Tatarusanu til liðs við sig og skrifaði hann undir fimm ára samning við félagið.
Tatarusanu er 28 ára gamall markvörður sem hefur undanfarin sex tímabil verið á mála hjá Steaua Búkarest í heimalandinu, en hann yfirgaf félagið á frjálsri sölu í sumar.

Tatarusanu hjálpaði Steaua að verða rúmenskur meistari í tvígang en hann stóðst læknisskoðun hjá Fiorentina í gær.

Hann hefur spilað 24 landsleiki fyrir Rúmeníu og verður spennandi að sjá hvernig hann stendur sig í Seríu A.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.