Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. júní 2019 18:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: 433 
Jón Dag­ur í lækn­is­skoðun hjá AGF
Jón Dagur í leik gegn Svíum.
Jón Dagur í leik gegn Svíum.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Samkvæmt 433.is er Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður Fulham, í læknisskoðun hjá AGF. Eftir læknisskoðunina mun hann skrifa undir hjá AGF.

Fulham nýtti sér ákvæði í samningi Jóns Dags í vor og framlengdi samning hans um eitt ár. AGF mun því kaupa hann frá Fulham.

Jón Dagur var á láni hjá Vendsyssel í dönsku Superliga á liðnu tímabili og stóð sig vel.

Hann er tvítugur og hann var Í U21-árs landsliðinu sem vann Dani, 2-1 á föstudaginn. Jón Dagur á að baki þrjá leiki með A-landsliðinu og í þeim hef­ur hann skorað eitt mark.

Jón Dagur mun skrifa undir hjá AGF á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner