Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mán 10. júní 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sky: Man Utd með annað tilboð í Wan-Bissaka
Mynd: Getty Images
Crystal Palace neitaði nýlega 40 milljóna punda tilboði Manchester United í Aaron Wan-Bissaka.

Wan-Bissaka spilaði mjög vel í hægri bakverðinum hjá Palace á leiktíðinni og var valinn besti leikmaður félagsins af stuðningsmönnum í vor.

Crystal Palace var talið vilja fá um 60 milljónir punda fyrir leikmanninn unga sem á þrjú ár eftir af samningi sínum.

Samkvæmt Sky eru félögin í viðræðum og mun nýja tilboð United vera talsvert nær þeim 60 milljónum punda sem Palace vill fá fyrir hinn 21 árs Wan-Bissaka.

Sky segir einnig að United sé tilbúið að leggja ansi mikið í sölurnar til þess að tryggja það að Harry Maguire komi til félagsins frá Leicester.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner