10.06.20 - 19:55
Ívan Guðjón Baldursson
Billy Sharp og Norwood framlengja við Sheffield (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield United er búið að framlengja samninga tveggja leikmanna sinna. Fyrirliðinn Billy Sharp og varafyrirliðinn Olvier Norwood verða því áfram hjá félaginu næstu árin.
Hinn 34 ára gamli Sharp fær tveggja ára samning á meðan Norwood, 29, er bundinn félaginu til sumarsins 2023.
Sheffield hefur verið spútnik lið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og er í harðri baráttu við stórliðin um síðasta lausa Evrópudeildarsætið.
Sharp kom mikið inn af bekknum fyrir áramót og er mikilvægur fyrir móralinn. Eftir áramót fór hann að byrja leiki og var kominn í gang þegar Covid skall á. Hann gerði þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum Sheffield fyrir pásu.
Norwood er fastamaður á miðjunni og sinnir mikilvægu hlutverki í skipulögðu og orkumiklu liði Sheffield.