Ainsley Maitland-Niles, leikmaður Arsenal, vill fá framtíð sína á hreint en það er óvíst hvar hann spilar næsta vetur.
Maitland-Niles var lánaður til West Bromwich Albion á síðustu leiktíð en tækifærin voru af skornum skammti á Emirates.
Nú er óljóst hvað Arsenal vill gera við bakvörðinn sem kom upphaflega í aðallið félagsins árið 2014.
Hann veit sjálfur ekki hvað gerist í sumarglugganum en vonast eftir því að fá símtal frá félaginu sem fyrst.
„Ef ég fengi símtal frá einhverjum hjá Arsenal á morgun og þeir vildu funda þá væri það mun auðveldara," sagði Maitland-Niles.
„Þeir gætu hringt í mig og sagst vilja nota mig í framtíðinni eða selja mig. Ég hef heyrt að þeir þurfi pláss í hópnum og peninga svo ég veit ekki."
„Ég vil fá eitthvað á hreint. Svo vonandi get ég byrjað að vinna með hverjum sem ég mun vinna fyrir."
Athugasemdir