Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 10. júní 2021 20:49
Victor Pálsson
Leikmenn Chelsea höfðu áhyggjur af Abramovich - Sambandið mjög gott
Mynd: Getty Images
Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er mjög vingjarnlegur og góður maður að sögn Wayne Bridge, fyrrum leikmanns félagsins.

Abramovich hefur átt Chelsea frá árinu 2003 og hefur félagið verið á mikilli uppleið síðan hann mætti til Englands.

Abramovich er lítið fyrir að tjá sig opinberlega og er erfitt að finna viðtal við hann þar sem enska tungumálið er talað.

Bridge talar þó virkilega vel um Rússann sem mætti reglulega inn í búningsklefa Chelsea á sínum tíma.

„Roman elskar Chelsea. Hann naut þess að vera með okkur í búningsklefanum. Hann hefði elskað að vera einn af strákunum," sagði Bridge.

„Þegar hann hafði ekki tíma vegna annarra verkefna og við höfðum ekki séð hann lengi þá höfðum við alltaf áhyggjur af honum."

„Hann er mjög vingjarnlegur og hógvær þrátt fyrir alla peningana. Opinberlega þá þykist hann ekki kunna ensku en það er mjög þægilegt að tala við hann."

„Þegar við vorum í sumarfríi og hann var nálægt þá hafði hann alltaf samband. Einu sinni þá var ég í suður Frakklandi og hann bauð mér í mat."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner