Það er mikil spenna fyrir komandi tímabili í ítalska boltanum þar sem Maurizio Sarri og Jose Mourinho, fyrrum knattspyrnustjórar Chelsea, þjálfa sitthvort höfuðborgarliðið - Lazio og Roma.
Sarri tók við Lazio á dögunum en Mourinho var ráðinn til Roma fyrr í sumar. Stuðningsmenn Roma eru afar spenntir fyrir Mourinho, sem gerði stórkostlega hluti með Inter á sínum tíma, og bjuggu til veggmynd af honum keyrandi um á vespu.
Stuðningsmenn Lazio eru ekki síður spenntir fyrir Sarri sem gerði frábæra hluti með Empoli og Napoli.
Einhverjir þeirra tóku sig því til og breyttu veggmyndinni af Mourinho. Þeir bættu Sarri við myndina þar sem hausinn hans flýtur fyrir ofan Mourinho og blæs sígarettureyk framan í hann.
#Roma, rovinato il murale dedicato a #Mourinho: c'è #Sarri che fuma sulla faccia dello Special One@dariomarchetti7 pic.twitter.com/P3DDm5kf8F
— TUTTOmercatoWEB (@TuttoMercatoWeb) June 10, 2021
Athugasemdir