Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englendinga er búinn að viðurkenna að kantmaðurinn öflugi Bukayo Saka er tæpur fyrir upphafsflautið á heimsmeistaramótinu.
Saka er að glíma við vandamál í hásin og hefur ekki getað æft jafnt mikið og liðsfélagar sínir í landsliðinu. England mætir Króatíu í stórleik í fyrstu umferð HM á þjóðhátíðardag Íslendinga, 17. júní.
Hinn 24 ára gamli Saka er einn af fjórum leikmönnum í Englandsmeistaraliði Arsenal sem er í lokahóp Englendinga. Hinir þrír eru Eberechi Eze, Declan Rice og Noni Madueke.
„Bukayo er ekki alveg klár í slaginn, hann hefur verið að spila í gegnum meiðsli síðustu mánuði. Það er magnað hvað hann er góður þrátt fyrir að vera meiddur. Hann er ekki 100% tilbúinn. Arsenal fór mjög vel með hann og passaði mikið upp á meiðslin. Hann er á bataferli," segir Tuchel.
„Bukayo getur byrjað leiki fyrir okkur en það er mjög ólíklegt að hann nái að klára marga leiki á upphafi móts."
Tuchel segir þá að varnarmaðurinn fjölhæfi John Stones sé búinn að jafna sig eftir meiðslahrjáð tímabil.
„John er í góðu standi og vonandi haldast allir leikmenn hópsins heilir fyrir leikinn gegn Króatíu. Strákarnir eru allir tilbúnir í slaginn og líta vel út á æfingum."
08.06.2026 10:04
Bellingham ekki öruggur með byrjunarliðssæti
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


