10.07.14 - 12:00
Daníel Freyr Jónsson
Alberto Gilardino farinn til Kína (Staðfest)

Alberto Gilardino er farinn til Kína.

Mynd: Getty Images

Alberto Gilardino er farinn til Kína.

Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Alberto Gilardino hefur söðlað um og er genginn í raðir kínveska félagsins Guangzhou Evergrande.
Gilardino, sem er 31 árs gamall, lék með Genoa á síðustu leiktíð og skoraði þá 15 mörk í Serie A. Hafði Gilardino meðal annars verið orðaður við Toronto FC í MLS-deildinni í sumar.
Hann átti enn eftir tvö ár af samningi sínum við félagið en óljóst er hve haá upphæð Guangzhou greiddi Genoa.
Gilardino varð heimsmeistari með Ítölum árið 2006. Hjá Guangzhou hittir hann Marcello Lippi, sem stýrði Ítalíu á Heimsmeistaramótinu það árið.