10.07.14 - 18:54
Daníel Freyr Jónsson
Alexis Sanchez kominn til Arsenal (Staðfest)

Alexis Sanchez í treyju Arsenal.

Mynd: Heimasíða Arsenal

Sanchez stóð sig vel á HM með landsliði Síle.

Mynd: Getty Images

Alexis Sanchez í treyju Arsenal.

Mynd: Heimasíða Arsenal
Arsenal hefur gengið frá kaupum á framherjanum Alexis Sanchez frá Barcelona. Talið er að kaupverðið nemi 30 milljónum punda.
Sanchez, sem er 25 ára gamall, gekkst í dag undir læknisskoðun hjá Arsenal áður en hann undirritaði langtímasamning hjá félaginu.

Þessi landsliðsmaður Síle var í herbúðum Barceona í þrjú ár eftir að hafa komið frá Udinese. Á þeim tíma lék hann 88 leiki og skoraði 39 mörk.
,,Ég er rosalega ánægður með að vera kominn til Arsenal, félags sem hefur frábæran stjóra, frábæran hóp, hefur rosalegan stuðning um allan heip og magnaðan leikvang í Lundúnum,\" sagði Sanchez við undirskriftina.
,,Ég hlakka mjög til að hitta nýju samherja mína og að spila fyrir Arsenal í ensku deildinni sem og Meistaradeildinni. Ég mun leggja mitt besta fram fyrir Arsenal og vill gera alla stuðningsmenn liðsins ánægða.\"
Í tilkynningunni frá Arsenal Sanchez hefur æfingar með liðinu í lok júlí að loknu sumarfrí.

Heimild: Heimasíða Arsenal