10.07.14 - 17:23
Magnús Már Einarsson
Billy Berntsson í Val (Staðfest)

Billy Berntsson.

Mynd: Valur

Billy Berntsson.

Mynd: Valur
Valur hefur fengið hægri bakvörðinn Billy Velo Berntsson til liðs við sig.
Billy á að fylla skarð James Hurst sem yfirgaf herbúðir Vals á dögunum og gekk í raðir Hednesford Town.

Billy er þrítugur Sví en hann hefur meðal annars leikið með Malmö og GIF Sundsvall í heimalandi sínu. Þá hefur hann einnig leikið með Kilmarnock í Skotlandi.
Auk þess að leika í stöðu hægri bakvarðar getur Billy leyst aðrar stöður í vörninni.
Billy fær leikheimild með Val þegar félagaskiptaglugginn opnar á þriðjudag en það sama á við um kantmanninn unga Daða Bergsson sem samdi við félagið á dögunum.
Báðir leikmennirnir geta því spilað sinn fyrsta leik með Val gegn KR laugardaginn 19. júlí.