10.07.14 - 13:08
Elvar Geir Magnússon
Mario Mandzukic til Atletico Madrid (Staðfest)

Mandzukic eftir að hafa fengið rauða spjaldið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spánarmeistararnir í Atletico Madrid hafa staðfest að þeir hafa klófest Mario Mandzukic frá Bayern München. Mandzukic raðaði inn mörkum í þýska boltanum síðasta vetur en framtíð hans var í óvissu eftir að Bæjarar keyptu Robert Lewandowski.
Mandzukic er króatískur landsliðsmaður en margir Íslendingar þekkja hann best frá því að hann fékk rautt spjald fyrir brot á Jóhanni Berg Guðmundssyni á Maksimir leikvangnum.

Mandzukic skrifaði undir fjögurra ára samning við Atletico eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Þessi 28 ára leikmaður hóf ferilinn með NK Zagreb og Dinamo Zagreb og vann þrjá meistaratitla í Króatíu áður en hann fór til Þýskalands.
Hann spilaði tvö tímabil með Wolfsburg áður en hann fór til Bayern þar sem hann hjálpaði liðinu að vinna Meistaradeildina, Ofurbikar Evrópu, HM félagsliða, tvo Þýskalandsmeistaratitla, tvo bikarmeistaratitla og Ofurbikar Þýskalands.