10.07.16 - 17:30
Arnar Geir Halldórsson
Hagi yngri til Fiorentina (Staðfest)

Ianis leikur í treyju númer 10 líkt og gamli maðurinn

Mynd: Getty Images

Ítalska úrvalsdeildarliðið Fiorentina hefur gengið frá samningum við rúmenska miðjumanninn Ianis Hagi.
Flestir knattspyrnuáhugamenn kannast við föður kappans en það er nefnilega goðsögnin Gheorghe Hagi sem gerði garðinn frægan undir lok síðustu aldar.
Gheorghe var afar snjall leikstjórnandi og átti glæsilegan feril en hann lék meðal annars með Steuea Bucharest, Real Madrid, Brescia, Barcelona og Galatasaray á árunum 1987-2001.
Ianis Hagi lék 31 leik fyrir Viitorul Constanta í rúmensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og bar fyrirliðabandið þrátt fyrir ungan aldur en faðir hans þjálfar liðið.
Fiorentina endaði í 5.sæti Serie A á síðustu leiktíð og hefur náð sér í fleiri unga og efnilega leikmenn því hollenska ungstirnið Kevin Diks og pólski unglingalandsliðsmarkvörðurinn Bartlomiej Dragowski eru meðal þeirra sem hafa gengið til liðs við ítalska félagið í sumar.