Keflavík fékk í dag liðsstyrk frá Akureyri. Þorri Mar Þórisson er genginn í raðir Keflavíkur á láni út leiktíðina.
Þorri Mar er tvíburi Nökkva Þeys sem einnig er á mála hjá KA.
Tvíburarnir léku með Dalvík/Reyni í 3. deildinni í fyrra og þóttu standa sig afspyrnuvel.
Þorri Mar er tvíburi Nökkva Þeys sem einnig er á mála hjá KA.
Tvíburarnir léku með Dalvík/Reyni í 3. deildinni í fyrra og þóttu standa sig afspyrnuvel.
Þorri hefur einungis komið við sögu í tveimur Pepsi Max-deildarleikjum á leiktíðinni og tveimur Mjólkurbikarsleikjum.
Þorri er fæddur árið 1999. Hann skoraði fjögur mörk í 18 deildarleikjum með Dalvík/Reyni í fyrra.
Athugasemdir