Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. júlí 2019 09:20
Magnús Már Einarsson
Shameeka Fishley og Camilla Bassett á leið í Stjörnuna
Shameeka Fishley.
Shameeka Fishley.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Shameeka Fishley og Camilla Bassett eru að ganga í raðir Stjörnunnar í Pepsi Max-deild kvenna en Kristján Guðmundsson, þjálfari liðsins, staðfesti þetta í samtali við Vísi eftir 1-0 tap gegn KR í gærkvöldi.

Shameeka er miðjumaður sem spilaði með ÍBV í fyrra en þar áður var hún á mála hjá Sindra.

Stjarnan er í fimmta sæti í Pepsi Max-deild kvenna en liðið hefur ekki náð að skora í fimm leikjum í röð.

Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Selfossi á mánudag en Fishley og Bassett eiga ennþá eftir að fá leikheimild til að verða löglegar í þann leik.

Uppfært 11:30: Shameeka Fishley er komin með leikheimild og mætt í Amy er mætt í Draumaliðsdeild Toyota!
Athugasemdir
banner
banner
banner